Fréttasafn

Fyrirsagnalisti

Árshátíð og aðalfundur MIH - 9. feb. 2026

Árshátíð og aðalfundur Meistarafélags iðnaðarmanna í Hafnarfirði var haldinn á Hótel Selfossi 7 febrúar síðastliðinn. Skemmtu félagsmenn og makar sér konunglega yfir helgina í höfuðborg Suðurlands. Hjálmar Rúnar Hafsteinsson hætti sem varaformaður félagsins og var veitt heiðursviðurkenning frá félaginu fyrir vel unnin störf um árabil. Auk hans fengu Haukur Gunnarsson og Kristinn Kristinsson viðurkenningu fyrir stjórnarsetu. Friðrik Ólafsson fyrrverandi framkvæmdastjóri félagsins fékk einnig viðurkenningu fyrir áralanga vinnu í þágu félagsins.No description available.  Heiðursviðurkenningarhafar ásamt formanni og framkvæmdastjóra félagsins. 

Félagsmenn og makar dönsuðu svo undir tónlistarflutningi Selmu Björns og í kjölfarið Sérsveitarinnar ballsveitar. Bolli Már Bjarnason sá um uppistandi og veislustjórn og hjálpaði gestum að dilla sér og veifa handþurrkum svo fátt eitt sé nefnd. 
Stjórn og skemmtinefnd félagsins þakkar kærlega fyrir þátttökuna um helgina. 

Aðalfundur MIH - 28. jan. 2026

Aðalfundur félagsins verður haldinn á Hótel Selfossi 7 febrúar næstkomandi. Hefðbundin aðalfundarstörf hefjast kl 13:30. Árshátíð félagsins verður haldin í kjölfarið og hafa fjölmargir félagar bókað sér gistingu bæði á föstudegi og laugardegi.

Sjáumst sem allra flest.
Kveðja

Skemmtinefnd MIH

Lesa meira

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar óskaði eftir umsögn MIH - 19. jún. 2025

MIH fékk nýja húsnæðisáætlun Hafnarfjarðar til umsagnar. MIH fagnar því að Hafnarfjarðarbær leiti umsagnar félagsins, hefði þó viljað lengri frest en skilaði umsögn á tilsettum tíma. Hér er frétt um málið, ásamt umsögninni, á heimasíðu SI, https://www.si.is/frettasafn/mih-fagnar-vandadri-husnaedisaaetlun-hafnarfjardar. Hægt er að nálgast drög að húsnæðisáætluninni á heimasíðu Hafnarfjarðar, reyndar á bæjarstjórn eftir að staðfesta hana, fundur Skipulags- og byggingarráð fundur 827 liður no. 11


Golfmót MIH 2025 - 4. mar. 2025

Golfmót MIH verður haldið á Flúðum föstudaginn 13. júní 2025. Nú er um að gera fyrir félagsmenn að taka þennan dag frá í dagbókum sínum.

Mikilvægi löggiltra iðngreina er mikið - 28. nóv. 2024

Á formannafundi allra meistarafélaga, fyrr í mánuðinum ,var lögð sérstök áherslu á að vekja máls á mikilvægi löggiltra iðngreina nú í aðdraganda kosninganna og munum við fylgja því eftir þegar ný ríkisstjórn hefur tekið við.

Lesa meira