Fjölmennur súpufundur MIH
Meistarafélag iðnaðarmanna í Hafnarfirði hélt súpufund fyrir stuttu þar sem ný Mannvirkjagátt Mannvirkjastofnunar var kynnt. Um síðustu áramót öðluðust gildi ákvæði Laga um mannvirki og byggingarreglugerðar þar sem megin reglan er að byggingarstjóri framkvæmir áfangaúttektir sjálfur og skal notast við Mannvirkjagátt Mannvirkjastofnunar.
Meistarafélag
iðnaðarmanna í Hafnarfirði hélt súpufund fyrir stuttu þar sem ný Mannvirkjagátt
Mannvirkjastofnunar var kynnt. Um síðustu áramót öðluðust gildi ákvæði Laga um
mannvirki og byggingarreglugerðar þar sem megin reglan er að byggingarstjóri
framkvæmir áfangaúttektir sjálfur og skal notast við Mannvirkjagátt
Mannvirkjastofnunar. Stjórn MIH fannst mikilvægt að allir sem starfa sem
byggingarstjórar og iðnmeistarar kynni sér þessa mannvirkjagátt og ákvað að
boða til þessa súpufundar. Tveir starfsmenn Mannvirkjastofnunar komu til
fundarins og kynntu Mannvirkjagáttina, hvernig hún vinnur og hvernig
byggingarstjórar og iðnmeistarar skuli nota hana. Gaman er að segja frá því að
sjaldan eða aldrei hafa fleiri félagsmenn sótt fund sem þennan en rúmlega 60
félagsmenn mættu. Stjórn MIH þakkar Brynju, sem sér um sal Golfklúbbsins Keilis,
kærlega fyrir hennar aðkomu en félagið hafði tjáð henni að búast megi við 30-40
manns