Takið frá laugardaginn 21. febrúar

1. des. 2014

Stjórn MIH hefur tekið ákvörðun um að aðalfundur og árshátíð félagsins verði haldin sama dag, laugardaginn 21. febrúar 2015 á Grand Hótel.

Stjórn MIH hefur tekið ákvörðun um að aðalfundur og árshátíð félagsins verði haldin sama dag, laugardaginn 21. febrúar 2015 á Grand Hótel. Þessi breyting frá því sem verið hefur í áraraðir er að mati stjórnar og skemmtinefndar bæði spennandi og skemmtileg.

Dagurinn hefst á því að félagsmönnum og mökum er boðið í bröns kl. 13.00. Aðalfundarstörf hefjast kl. 14.00 og stendur fundurinn til 15.30-16.00. Á meðan getur maki annaðhvort farið í verslunarferð eða nýtt glæsilega aðstöðu á Grand Hótel og farið í spa eða snyrtingu. Milli 17.00-19.00 kemur hópurinn saman í happy hour eða gleðistund.

Árshátíð félagsins hefst kl. 19.00 með fordrykk og að honum loknum hefst hefðbundin dagskrá árshátíðar sem verður auglýst betur þegar þegar nær dregur.

Hvetjum alla til að taka þennan laugardag frá!