Tilkynning frá byggingarfulltrúa
Gæðastjórnun, móttaka uppdrátta, skráning byggingarstjóra og meistara
Samkvæmt lögum um mannvirki nr. 160/2010 eiga allir hönnuðir, byggingarstjórar og iðnmeistarar að vera komnir með gæðastjórnunarkerfi skráð hjá Mannvirkjastofnun frá og með ársbyrjun 2015 (sjá vefsíðu Mannvirkjastofnunar).
Samkvæmt lögum um mannvirki nr. 160/2010 eiga allir hönnuðir, byggingarstjórar og iðnmeistarar að vera komnir með gæðastjórnunarkerfi skráð hjá Mannvirkjastofnun frá og með ársbyrjun 2015 (sjá vefsíðu Mannvirkjastofnunar). Óheimilt er að taka við uppdráttum frá hönnuðum sem ekki eru með skráð gæðastjórnunarkerfi hjá Mannvirkjastofnun, og þeir verða ekki teknir til afgreiðslu. Þó má taka við leiðréttum gögnum vegna erinda sem hefur verið frestað á afgreiðslufundi fyrir áramótin. Einnig er óheimilt að skrá byggingarstjóra eða iðnmeistara á verk, ef þeir hafa ekki skráð gæðastjórnunarkerfi hjá Mannvirkjastofnun.