Samstarf er lykill að árangri
Skráning á STEFNUmót íslensks byggingariðnaðar í fullum gangi
Skráning er hafin á STEFNUmót íslensks byggingariðnaðar sem fram fer 4. nóvember nk. á Grand Hótel. Um er að ræða 300 manna heilsdags þing þar sem aðilar þvert á íslenskan byggingariðan munu rýna í stöðu byggingariðnaðarins í kjölfar efnahagshruns og skoða mögulegar umbætur og framfarir.
Skráning er hafin á STEFNUmót íslensks byggingariðnaðar sem fram fer 4. Nóvember nk. á Grand Hótel.
Um er að ræða 300 manna heilsdags þing þar sem aðilar þvert á íslenskan byggingariðnað munu rýna í stöðu byggingariðnaðarins í kjölfar efnahagshruns og skoða mögulegar umbætur og framfarir.
Sjá dagskrá HÉR
Viðburðurinn er hluti af viðburðaröðinni „Samstarf er lykill að árangri“ sem er samvinnuverkefni SI, Mannvirkjastofnunar, Félags Byggingafulltrúa, Nýsköpunarmiðstöðvar og Arkitektfélags Íslands.
STEFNUmótið er haldið í samvinnu við Siðfræðistofnun og Félagsvísindastofnun HÍ sem munu leggja spurningakannanir fyrir þátttakendur en afraksturinn verður nýttur til að móta skýrari stefnu og forgangsröðun meðal þeirra aðila sem starfa innan byggingariðnaðarins.
Dagskrá STEFNUmótsins stendur frá kl. 9-17 og í kjölfarið verður boðið til móttöku þar sem léttar veitingar verða og Ari Eldjárn stígur á stokk. Þátttaka í viðburðinum er endurgjaldslaus og er jafnframt boðið upp á hádegisverð og kaffiveitingar.
Þín rödd skiptir máli ! Skráðu þig á STEFNUmótið HÉR