Meistarafélag iðnaðarmanna í Hafnarfirði mótmælir lokunar jarðvegstipp
MIH hefur sent bæjarstjórn Hafnarfjarðar bréf þar sem mótmælt er lokunar á jarðvegstipp. Nýr jarðvegstippur er nú við Litlu kaffistofuna. Að mati MIH mun þetta hafa mikinn kostnaðarauka í för með sér fyrir alla þá sem hafa hugsað sér til hvers konar framkvæmda. Einnig bendir MIH á að þessi ákvörðun hefur í för með sér mikla slysahættu á þjóðvegum, aukna mengun og orkunotkun á sama tíma og almennt er verið að reyna minnka notkun eldsneytis. Bréfið sem sent var bæjarstjórn Hafnarfjarðar m á sjá hér.