Talning á íbúðum í byggingu
Samtök iðnaðarins stóðu nýverið fyrir talningu íbúða í byggingu á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Niðurstaðan er að íbúðir sem eru fokheldar eða lengra komnar eru 1175 talsins og hafin er bygging á 244 íbúðum til viðbótar. Samtals eru þetta því 1419 íbúðir. Talið er að árlega þurfi um 1500 nýjar íbúðir inn á markaðinn og eru íbúðir í byggingu því innan við áætlaða ársþörf. Þá þarf að hafa í huga að byggingartími íbúðar í fjölbýli er 18-24 mánuðir þannig að ljóst er að íbúðir í byggingu eru langt frá því að fullnægja þörf markaðarins.
Samtökin töldu einnig íbúðir í mars 2011 og var þá sambærileg tala 1648. Þó fækkun frá vori til hausts sé einungis 229 íbúðir er mikil breyting á byggingarstigi einstakra eigna og talsvert verið að vinna í ófullgerðum mannvirkjum.
Fokhelt og lengra komið (byggingarstig 4-7)
Íbúðir í fjölbýli | 837 | Rað- og parhús | 234 | Einbýli | 104 | Samtal | 1175 |
Sökklar og að fokheldu (byggingarstig 2 og 3)
Íbúðir í fjölbýli | 213 | Rað- og parhús | 17 | Einbýli | 14 | Samtals | 244 |
Heildar fjöldi íbúða á höfuðborgarsvæðinu: 1419
Tölur úr Hafnarfirði eru þessar:
Fokhelt og lengra komið (byggingarstig 4-7)
Íbúðir í fjölbýli 239 Rað- og parhús 56 Einbýli 25 Samtal 320
Sökklar og að fokheldu (byggingarstig 2 og 3)
Íbúðir í fjölbýli + Rað- og parhús + Einbýli Samtals 291
Heildar fjöldi íbúða í Hafnarfirði: 411