Framkvæmdir á Fjólugötu 15 Akureyri

30. okt. 2009

Átta félagsmenn MIH fóru í sjálfboðaferð til að endurbæta íbúð okkar Fjólugötunni

Framkv Fjólugötu 2009 1Átta félagsmenn MIH fóru í sjálfboðavinnu til Akureyrar, nánar tiltekið til að endurbæta íbúð okkar að Fjólugötu 15. Lagt var upp í ferðina á miðvikudegi og komið til baka suður á laugardags kvöldi. Unnið var langt fram á kvöld alla daga við að rífa og endurbæta og að lokum var öll íbúðin máluð hátt og lágt. Skipt var um húsgögn enda þau sem fyrir voru orðin bæði gömul og sjúskuð að okkar mati. Óhætt er að segja að íbúðin er orðin enn vistlegri en áður, töldu samt margir að hún væri fyrir breytingu hreint út æðisleg. Félagsmenn eru hvattir til að nýta sér þær vikur/helgar sem lausar eru, en það er hægt að sjá það hér til hliðar undir „Orlofshús“. Hér er hægt að sjá myndir af framkvæmdum og hvernig þetta lítur út eftir breytingu.