Glæsileg var árshátíð MIH

19. feb. 2009

Frábær árshátíð var haldin á Grand-Hótel í lok janúar. Ýmsir aðilar voru með vangaveltur um að ekki ætti að halda þessa árshátíð á þessum erfiðu tímum sem við lifum á. Skemmtinefnd, með stuðning stjórnar, ákvað að hlusta ekki á neitt svartsýnishjal og blés til hátíðar. Það er skemmst frá að segja að þátttaka var frábær, en 82% félagsmanna mættu og skemmtu sér hið besta fram á morgun. Enginn lét ástandið í þjóðfélaginu skemma þessa skemmtun og sýndi það okkur að félagsmenn MIH kunna vel að skilja á milli skemmtunar og erfieika í hinu daglega lífi. Þetta sýnir okkur einnig að það er nauðsynlegt að standa fyrir hinum ýmsu uppákomum, við verðum jú að hlúa að “lífinu” áfram.

Myndir frá árshátíðinni eru komnar í hús, og með því að smella á þennan texta sjáið þið myndirnar.