Glæsileg afmælisárshátíð MIH

1. feb. 2008

Laugardaginn 26. janúar síðastliðinn var haldin einstaklega glæsileg afmælisárshátíð MIH á Grand Hótel. Met þátttaka var en alls mættu 250 manns. Næstum því helmingur þátttakenda tók herbergi á hótelinu til að njóta enn frekar alls þess sem hótelið býður upp á og sleppa við leit að leigubílum. Ekki er ástæða til að tíunda frekar hversu vel þessi hátíð tókst heldur bendi þeim sem vilja skoða myndir frá hátíðinni á að skoða myndir hér. Athugið að myndirnar verða setta á okkar heimasíðu um leið og þær berast í hús.